Tónlistarskóli
Viđ Stórutjarnaskóla starfar tónlistarskóli, sem er hluti af Stórutjarnaskóla og lýtur yfirstjórn skólastjóra. Tónlistarskólinn starfar eftir ţeim námskrám, lögum og reglugerđum um tónlistarskóla sem í gildi eru á hverjum tíma. Hlutverk skólans er ađ glćđa áhuga á tónlist og tónlistariđkun á starfssvćđi sínu, annast kennslu í hljóđfćraleik ásamt öđrum tónlistargreinum og búa nemendur sína undir áframhaldandi nám í tónlist. Rétt til náms viđ tónlistarskólann hafa íbúar á skólasvćđi Stórutjarnaskóla. Verđi ađsókn meiri en hćgt er ađ sinna skulu nemendur Stórutjarnaskóla njóta forgangs.
Viđ tónlistarskólann starfar deildarstjóri sem ber faglega ábyrgđ á tónlistarkennslunni og öđru innra starfi. Deildarstjóri skipuleggur starf tónlistarskólans og fer međ daglega stjórnun hans í samráđi viđ skólastjóra.
Í vetur verđa kennarar viđ tónlistarskólann tveir:
Jaan Alavere, deildarstjóri (píanó, fiđla, trommur, gítar, bassi) Marika Alavere (píanó, blokkflauta, hljómborđ)
Hljóđfćratímar
Fyrirkomulag kennslu: Kennararnir sćkja yngri nemendur í spilatíma úr tímum grunnskólans. Ćtlast er til ađ eldri nemendur passi upp á sína tíma sjálfir. Sú stađa getur komiđ upp ađ vinna í grunnskólanum, t.d. próf eđa ferđalög koma í veg fyrir ađ hćgt sé ađ taka nemanda í tónlistartíma. Reynt verđur ţó eftir föngum ađ forđast slíkt. Í tónlistartímunum vinnur nemandinn undir leiđsögn kennara verkefni sem ţyngjast stig af stigi. Fyrstu ár yngstu nemendanna felast ađ mestu í ţjálfun undirstöđuatriđa tćkni, agađra vinnubragđa og umgengnisatriđa varđandi hljóđfćriđ.
Tónleikar og ađrar uppákomur: Reynt er jafnt og ţétt ađ venja nemendur viđ ađ koma fram og leika lögin sem ţeir eru ađ ćfa fyrir áheyrendur. Nemendur fá tćkifćri til ađ koma fram á menningarstundum í skólanum og öđrum uppákomum og hátíđum á vegum skólans, auk hefđbundinna tónleika fyrir jól og ađ vori. (Sjá nánar á skóladagatali.)
Heimanám/ćfingar: Alger undirstađa framfara í tónlistarnáminu er ađ nemandi ćfi sig heima og er ţá betra ađ hann ćfi sig stutta stund á hverjum degi en ađ hann sitji lengi viđ, daginn fyrir spilatímann.
|